Kröftug jarðskjálftahrina við Geirfugladrang

Í gær (25. Ágúst 2026) varð kröftug jarðskjálftahrina við Geirfugladrang. Það komu fram fimm jarðskjálftar sem voru stærri en Mw3,0. Það voru tveir jarðskjálftar með stærðina Mw4,1. Það kom fram einn jarðskjálfti með stærðina Mw3,6. Það komu fram tveir jarðskjálftar með stærðina Mw3,4. Jarðskjálftahrinan er langt frá landi og jarðskjálftar mælast illa á þessu svæði vegna fjarlægðar frá jarðskjálftamælum Veðurstofunnar. Það fannst líklega einn af stóru jarðskjálftunum á Reykjanesskaga.

Grænar stjörnur sem sýna stærstu jarðskjálftana við Geirfugladrang úti á Reykjaneshrygg. Gulir punktar sýna minni jarðskjálftana á sama svæði.
Jarðskjálftahrinan á Reykjaneshrygg við Geirfugladrang. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.

Þegar þessi grein er skrifuð. Þá er jarðskjálftahrinan ennþá í gangi eftir að hafa verið róleg í allan dag. Það er möguleiki á því að þessi jarðskjálftahrina eigi upptök sín í kvikuhreyfingum á þessu svæði en fjarlægð frá landi og að þetta er úti í sjó gerir erfitt að meta það til þess að vera viss. Það eru meiri líkur en minni að þetta sé vegna kvikuhreyfinga á þessu svæði hafi valdið þessari jarðskjálftahrinu.

Minniháttar jarðskjálftahrina í eldstöðinni Reykjanes

Í dag (24. Ágúst 2026) varð minniháttar jarðskjálftahrina í eldstöðinni Reykjanes. Stærsti jarðskjálftinn var með stærðina Mw2,9.

Appelsínugular og rauðir punktar við Reykjanestá sem sýna mjög litla jarðskjálfta á þessu svæði.
Jarðskjálftahrina í eldstöðinni Reykjanes á Reykjaneshrygg. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.

Þessi jarðskjálftahrina virðist ennþá vera í gangi að hluta, en það eru samt mjög fáir jarðskjálftar að eiga sér stað þegar þessi grein er skrifuð.