Jarðskjálftahrina í eldstöðinni Presthnúkar

Í dag (15. September 2026) klukkan 14:18 varð jarðskjálfti með stærðina Mw4,2 í eldstöðinni Presthnúkar. Þessi jarðskjálfti fannst á nálægum sveitarbæjum sem eru sunnan við Langjökul. Þessi jarðskjálfti er stærsti jarðskjálftinn á þessu svæði í jarðskjálftahrinu sem er á þessu svæði.

Græn stjarna í norður hluta eldstöðvarinnar Presthnúkar. Rauðir punktar í nágrenninu sem sýna minni jarðskjálfta.
Jarðskjálftahrinan í eldstöðinni Presthnúkar í Langjökli. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.

Þegar þessi grein er skrifuð. Þá er jarðskjálftahrinan ennþá í gangi í eldstöðinni Presthnúkar. Það þýðir að það er hætta á fleiri stórum jarðskjálftum í Presthnúkar eldstöðinni.