Kröftug jarðskjálftahrina í eldstöðinni Brennisteinsfjöllum

Í gær, þann 31. Maí 2026 hófst jarðskjálftahrina í eldstöðinni Brennisteinsfjöllum. Jarðskjálftahrinan er ennþá í gangi þegar þessi grein er skrifuð. Stærsti jarðskjálftinn sem hefur orðið var með stærðina Mw4,5 klukkan 13:45 og síðan varð jarðskjálfti með stærðina Mw3,8 klukkan 16:17, síðan varð jarðskjálfti með stærðina Mw3,4 klukkan 16:46. Allir stærstu jarðskjálftarnir hafa fundist.

Grænar stjörnur sem sýna stærstu jarðskjálftana í Brennisteinsfjöllum, ásamt fullt af rauðum punktum á stóru svæði.
Jarðskjálftavirknin í Brennisteinsfjöllum í dag. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.

Það er ekki að sjá að þessi jarðskjálftahrina eigi upptök sín í hreyfingum kviku á svæðinu. Heldur virðist þarna um að vera hreyfingar sigdals sem er á þessu svæði. Það getur komið af stað kvikuhreyfingum síðar en núna er ekki að sjá að það sé tilfellið. Ef frekari virkni verður á þessu svæði. Þá mun ég skrifa nýja grein um stöðu mála.

Grein uppfærð þann 3. Júní 2026 klukkan 23:00. Nýjar upplýsingar sýna að jarðskjálftahrinan á upptök sín í eldstöðinni Brennisteinsfjöllum en ekki eldstöðinni Henglinum sem er þarna aðeins austar.