Jarðskjálftahrina við Geirfugladrang á Reykjanesskaga

Í gær (23. Mars 2026) klukkan 12:08 hófst jókst jarðskjálftahrina við Geirfugladrang sem hefur verið í gangi síðan Föstudaginn þann 20. Mars 2026. Stærsti jarðskjálftinn þegar þessi grein er skrifuð er með stærðina Mw4,4 og fannst á Akranesi, Reykjavík og annarstaðar á Reykjanesskaga.

Grænar stjörnur á Reykjaneshrygg ásamt rauðum punktum sem sína minni jarðskjálfta á þessu svæði.
Jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaga. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.

Jarðskjálftavirknin eykst í bylgjum. Þá er mikil virkni í rúmlega í fjóra tíma í einu eða lengur, síðan er lítil virkni í rúmlega einn til þrjá klukkutíma. Þetta breytist á nokkura klukkutíma fresti. Ég met þetta sem slíkt að þarna sé kvika á ferðinni að valda þessari jarðskjálftavirkni. Það er ekki líklegt að þessi kvika komi af stað eldgosi núna. Ef það verður mjög mikil aukning í jarðskjálftum. Þá gæti það verið vísbending um að kvikan sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Það sem er að gerast núna er hugsanlega er að kvikuinnskot sér að eiga sér stað í jarðskorpuna á þessu svæði. Fjarlægð frá landi og að svæðið er undir sjó gerir það mjög erfitt að fylgjast með því sem er að gerast á þessu svæði.

Ef eitthvað meira gerist. Þá mun ég birta nýja grein eins fljótt og hægt er.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.