Jarðskjálftahrinan í eldstöðinni Reykjanes

Ég afsaka hversu seint ég var með þessa grein. Ég fékk kvef með þessum venjulegu vandamálum.

Á Sunnudeginum þann 8. Febrúar 2026 hófst jarðskjálftahrina við Eldey. Í kringum 1000 jarðskjálftar hafa mælst í þessari jarðskjálftahrinunni. Stærstu jarðskjálftarnir voru með stærðina Mw3,4. Aðrir jarðskjálftar sem urðu voru minni að stærð.

Þrjár grænar stjörnur þar sem stærstu jarðskjálftarnir áttu sér stað. Rauðir punktar og síðan gulir punktar sína eldri og minni jarðskjálfta.
Jarðskjálftahrinan við Eldey í eldstöðinni Reykjanes. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.

Það er möguleiki á því að þessi jarðskjálftahrina sé tengd þenslunni í eldstöðinni Svartsengi. Þar sem þenslan breytir spennustigi á öllum Reykjanesskaga og síðan á Reykjaneshrygg. Hversu vel þessi þenslan veldur jarðskjálftum annarstaðar á Reykjanesinu er ekki vitað. Það er einnig óljóst hvort að þessi jarðskjálftahrina sé vegna kvikuhreyfinga á þessu svæði. Það ætti hinsvegar ekki að vera útilokað. Ekkert eldgos varð í þessari jarðskjálftahrinu. Það er einnig möguleiki á því að fleiri jarðskjálftahrinur verði á þessu svæði næstu daga og vikur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.