Síðan á laugardaginn 23, Maí 2026 hefur verið jarðskjálftahrina í eldstöðinni Reykjanes úti á Reykjaneshrygg. Þessi jarðskjálftahrina er ekki upphafið af eldgosi á þessu svæði en er mjög líklega langtímamerki um þróun mála í átt að eldgosi í eldstöðinni Reykjanes. Stærsti jarðskjálftinn í þessari jarðskjálftahrinu var með stærðina Mw3,5 en annar stærsti jarðskjálftinn var með stærðina Mw2,9.

Þegar þessi grein er skrifuð. Þá er jarðskjálftahrinan ennþá í gangi en miklu minni en áður. Það er möguleiki á því að þessari jarðskjálftahrinu sé að ljúka og muni ljúka á næstu klukkutímum. Það gerist nokkuð oft á Reykjaneshrygg að jarðskjálftahrinu hefjist aftur á sama svæði. Eins og er, þá er þetta bíða og sjá til staða mála.

Hriggurinn í miðju Húllinu er það gamall goshriggur.
Það er talsvert um gamla gosgíga sem ná út í sjó á þessu svæði. Þar sem eldstöðin Reykjanes nær inná land en liggur að mestu leiti út í sjó. Hvort að þessir gos gígar koma fram á korti Veðurstofunnar veit ég ekki.