Jarðskjálftahrina í eldstöðinni Reykjanes

Síðan á laugardaginn 23, Maí 2026 hefur verið jarðskjálftahrina í eldstöðinni Reykjanes úti á Reykjaneshrygg. Þessi jarðskjálftahrina er ekki upphafið af eldgosi á þessu svæði en er mjög líklega langtímamerki um þróun mála í átt að eldgosi í eldstöðinni Reykjanes. Stærsti jarðskjálftinn í þessari jarðskjálftahrinu var með stærðina Mw3,5 en annar stærsti jarðskjálftinn var með stærðina Mw2,9.

Græn stjarna sem sýnir stærsta jarðskjálftann og appelsínugulir punktar sem sýna minni jarðskjálfta í eldstöðinni Reykjanes.
Eldstöðin Reykjanes úti á Reykjaneshrygg. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.

Þegar þessi grein er skrifuð. Þá er jarðskjálftahrinan ennþá í gangi en miklu minni en áður. Það er möguleiki á því að þessari jarðskjálftahrinu sé að ljúka og muni ljúka á næstu klukkutímum. Það gerist nokkuð oft á Reykjaneshrygg að jarðskjálftahrinu hefjist aftur á sama svæði. Eins og er, þá er þetta bíða og sjá til staða mála.