Ég afsaka hversu seint ég var með þessa grein. Ég fékk kvef með þessum venjulegu vandamálum.
Á Sunnudeginum þann 8. Febrúar 2026 hófst jarðskjálftahrina við Eldey. Í kringum 1000 jarðskjálftar hafa mælst í þessari jarðskjálftahrinunni. Stærstu jarðskjálftarnir voru með stærðina Mw3,4. Aðrir jarðskjálftar sem urðu voru minni að stærð.

Það er möguleiki á því að þessi jarðskjálftahrina sé tengd þenslunni í eldstöðinni Svartsengi. Þar sem þenslan breytir spennustigi á öllum Reykjanesskaga og síðan á Reykjaneshrygg. Hversu vel þessi þenslan veldur jarðskjálftum annarstaðar á Reykjanesinu er ekki vitað. Það er einnig óljóst hvort að þessi jarðskjálftahrina sé vegna kvikuhreyfinga á þessu svæði. Það ætti hinsvegar ekki að vera útilokað. Ekkert eldgos varð í þessari jarðskjálftahrinu. Það er einnig möguleiki á því að fleiri jarðskjálftahrinur verði á þessu svæði næstu daga og vikur.
