Jarðskjálfti með stræðina Mw3,3 suður-vestur af eldstöðinni Presthnúkar

Í gær (24. Júní 2026) varð jarðskjálfti með stærðina Mw3,3 suður-vestur af eldstöðinni Presthnúkar. Þessi jarðskjálfti er hluti af jarðskjálftahrinu sem er á þessu svæði sem er ennþá í gangi.

Græn stjarna þar sem stærsti jarðskjálftinn er suður-vestur af eldstöðinni Presthnúkar. Þarna er einnig fullt af litlum rauðum punktum sem sýna minni jarðskjálfta.
Jarðskjálftavirknin suður-vestur af eldstöðinni Presthnúkar. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.

Miðað við þau jarðskjálftagögn sem ég hef séð. Þá tel ég líklegt að þessi jarðskjálftahrina sé vegna kvikuhreyfinga á svæðinu. Eins og er, þá tel ég engar líkur á eldgosi á þessu svæði. Þar sem jarðskjálftavirknin er einfaldlega of lítil til þess að það sé að fara að gerast. Svona jarðskjálftahrina eins og er þarna getur haldið áfram í marga mánuði, jafnvel ár áður en jarðskjálftahrinan stöðvast.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.