Þann 13. Júní 2026 klukkan 20:14 varð jarðskjálfti með stærðina Mw4,8 í Bárðarbungu. Þessi jarðskjálfti kom af stað jarðskjálftahrinu sem er sú stærsta í eldstöðinni Bárðarbungu síðan árið 2014. Það komu fram rúmlega 400 jarðskjálftar í þessari jarðskjálftahrinu. Það komu fram sex jarðskjálftar sem voru stærri en Mw3,0 í þessari jarðskjálftahrinu.

Ástæða þessar jarðskjálftahrinu er kvikuhreyfing innan eldstöðvarinnar Bárðarbungu. Jarðskjálftahrinan núna kom ekki af stað eldgosi. Svipuð jarðskjálftahrina varð í Bárðarbungu á síðasta ári. Það er möguleiki á því að þessari jarðskjálftahrinu sé ekki lokið, þó svo að ekkert hafi gerst í meira en tólf klukkutíma þegar þessi grein er skrifuð. Þar sem uppruni þessar atburðarrásar er kvika, þá er ekki hægt að segja til um það hvað gerist næst. Eldstöðin Bárðarbunga hefur verið að þenjast út síðan eldgosinu lauk árið 2015. Í eldgosinu árið 2014 til 2015 þá féll askja Bárðarbungu saman (Sigketill). Þegar það gerðist, þá lækkaði yfirborðið um 60 metra. Núna er þenslan búinn að hækka yfirborðið um 30 metra samkvæmt síðustu mælingum frá því sem það var lægst.
Ef það gerist eitthvað meira. Þá mun ég skrifa nýja grein um stöðu mála.
