Þetta er stutt uppfærsla á eldgosinu í Sundhnúkagígum sem hófst þann 29. Maí 2024 klukkan 12:46. Það er hugsanlegt að þetta verði eina uppfærslan um þetta eldgos, þar sem eldgos í Sundhnúkagígum vara bara í einn til þrjá daga svona venjulega. Hvort að það gerist á eftir að koma í ljós.
Í gær (29. Maí 2024) klukkan 12:46 hófst eldgos í Sundhnúkagígum sem eru í eldstöðinni Svartsengi. Eldgosið hófst nærri Sýlingafelli og á svipuðum stað og fyrri eldgos. Þegar mesta eldgosið varð, þá var flæði hrauns um 2000m3/sek. Síðan það var, þá hefur hægt á hraunflæði eldgossins og er það á bilinu 200m3/sek til 600m3/sek en þetta getur breyst hratt og án fyrirvara. Gossprungan var lengst um 4 km en er núna í kringum 1 til 2,5 km að lengd. Lengd sprungunnar mun breytast án fyrirvara.
![Hrauntungur standa hátt upp í loftið frá gossprunginni, auk þess sem gas skýið berst til austurs með vindinum frá eldgosinu.](https://eldstod.com/wp-content/uploads/2024/05/Eldgos-THorbjorn-svd-29.05.2024-at-1258utc-1024x576.png)
![Upphaf eldgossins, þar sem kvikan er búinn að ryðja sér leið upp á yfirborðið með miklum látum. Gas skýið er ennþá mjög lítið þarna.](https://eldstod.com/wp-content/uploads/2024/05/Eldgos-Hagafell-svd-29.05.2024-at-1248utc-1024x576.png)
![Miklir kvikustrókar sem voru farnir að koma klukkan 12:51. Þarna eru hraunstrókanir farnir að ná hæðinni um 70 metra upp í loftið.](https://eldstod.com/wp-content/uploads/2024/05/Eldgos-Hagafell-svd-29.05.2024-at-1252utc-1024x576.png)
![Eldgosið í fullum krafti klukkan 16:!2 og hraun straumar á fullu og gosstrókar farnir að vera stöðugt í kringum 70 metra háir.](https://eldstod.com/wp-content/uploads/2024/05/Eldgos-Hagafell-svd-29.05.2024-at-1613utc-1024x576.png)
![Eldgosið um 10 mínútum eða klukkan 12:54 eftir að það hófst. Gossprungan er þarna orðin um 1 km að lengd og er áfram að lengjast. Síðan halda gosstrókanir þarna áfram að hækka á þessum tímapunkti.](https://eldstod.com/wp-content/uploads/2024/05/Eldgos-THorbjorn-svd-29.05.2024-at-1255utc-1024x576.png)