Þetta er stutt grein, þar sem það hefur orðið lítil breyting á eldgosinu síðasta sólarhringinn.
Eldgosið er stöðugt þegar þessi grein er skrifuð. Það gæti breyst án viðvörunnar.
Óróinn frá eldgosinu hefur verið stöðugur síðasta sólarhringinn. Það hefur verið mjög lítil sveifla í óróanum.
GPS stöðvar sýna að land hefur sigið um rúmlega 200 til 300mm þegar þessi grein er skrifuð. Það er óvissa í þessum gögnum vegna slæms veðurs síðustu daga.
Samkvæmt Veðurstofu Íslands, þá er flatarmál hraunsins núna orðið 5,85 km2.
Það er lítil sem engin jarðskjálftavirkni á svæðinu við eldgosið. Það er hugsanlegt að slæmt veður sé að koma í veg fyrir mælingar á litlum jarðskjálftum.
Gígar halda áfram að hlaðast upp í eldgosinu.
Hraunið er um 350 metra frá Suðurstrandavegi og um 700 metra frá því að ná út í sjó.
Ef það verður breyting á stöðu mála. Þá mun ég skrifa nýja grein eins fljótt og hægt er. Næsta grein ætti að verða þann 21. Mars 2024 ef eldgosið verður ennþá í gangi.
Ég hef lítið verið að skrifa vegna þess að ég þurfti að taka mér smá frí frá skrifum. Þar sem þessi tíðu eldgos eru að valda talsvert miklu álagi hjá mér.
Samkvæmt Veðurstofunni, þá er hætta á nýju eldgosi við Sundhnúkagíga og nágrenni í næstu viku og þetta er í samræmi við það sem ég hef verið að sjá á GPS gögnum síðasta sólarhring. Eldgos getur þó orðið fyrr eða síðar en það sem er talið núna, en það er ekki nein leið til þess að vera viss hvað gerist næst í þessari virkni. Þenslan er kominn í sömu stöðu fyrir eldgosið þann 8. Febrúar. Það er ekki hægt að segja til um það hvað gerist næst í eldstöðinni Svartsengi. Það er hætta á því að næsta eldgos verði nærri Grindavík og ekki í Sundhnúkagígum eins og eldgosið sem varð þann 8. Febrúar 2024.
Eins og þetta er núna. Þá eru líkur á því að það verði eldgos í Sundhnúagígnum eða nágrenni þeirra á þrjátíudaga fresti þangað til að eitthvað breytist í Svartsengi. Hvenær það gerist er ekki hægt að segja til um. Það er hætta á því að eldgos á þrjátíu daga fresti muni vara í mjög langan tíma, jafnvel mörg ár.
Þetta er stutt grein um stöðu mála í eldgosinu við Sundhnúksgíga þann 8. Febrúar 2024 klukkan 23:29.
Fjögurra tíma GPS gögn virðast sýna það að þensla er nú þegar hafin í eldstöðinni Svartsengi. Það virðist sem að þessi þensla hafi byrjað um leið og það fór að draga úr eldgosinu um klukkan 13:00 í dag.
Eldgosið skemmdi heitavatnslögn frá Svartsengi. Það olli því að um 26.000 manns misstu heita vatnið. Það voru einnig einhverjar skemmdir á innviðum rafmagns á svæðinu en það voru minniháttar skemmdir og rafmagn er aftur komið á þessar rafmagnslínur. Staðan með kalda vatnið er óljós en þar er einnig hætta á skemmdum.
Þetta eldgos var stærra miðað við eldgosin 18. Desember 2023 og síðan eldgosið þann 14. Janúar 2024.
Það myndaðist lítið öskuský í dag og samkvæmt sérfræðingum sem komu fram í fréttum eða fjölmiðlum í dag. Þá dró svo snögglega úr eldgosinu að hrun varð úr börmum gossprungunnar og það kveikt í jarðvegi. Síðan fór grunnvatn af stað í gossprunguna sem myndaði mikið gufuský, ásamt öskuskýinu sem hafði myndast skömmu áður. Ég veit ekki hvort að gufuskýið sé hætt, þar sem það er myrkur og ég sé það ekki vegna þess. Þó er það líklegt að þetta sé hætt.
Eldgosið er í tveimur gígnum þegar þessi grein er skrifuð.
Það er búist við því, miðað við það hvernig hefur verið að draga úr eldgosinu að þessu eldgosi ljúki á morgun, 9. Febrúar en ekki seinna en 10. Febrúar.
Næsta eldgos í Svartsengi verður milli 6. Mars til 18. Mars ef núverandi munstur helst í eldstöðinni Svartsengi. Það er þó ekki hægt að segja til um það hvað gerist næst í eldstöðinni Svartsengi.
Ef eitthvað gerist. Þá mun ég setja inn uppfærslu eins fljótt og ég get.
Ég afsaka hvað þessi grein er seint á ferðinni. Ég hef verið að vinna í því að setja upp nýja þjóna tölvu hjá mér og það hefur tekið lengri tíma en ég reiknaði með.
Eldgosinu lauk eftir aðeins 41 klukkustund frá því að það byrjaði. Hraunið brenndi þrjú hús og olli skemmdum á vegum og öðrum innviðum í Grindavík, það er köldu vatni, heitu vatni og síðan rafmagni. Nýr sigdalur myndaðist austan við þann sigdal sem myndaðist þann 10. Nóvember 2023. Niðurstaðan af því er sú að Grindavík er núna orðin stórhættuleg og ekki hægt að fara þar um með neinu öryggi. Þar sem þarna eru sprungur sem eru allt að 40 metra djúpar áður en komið er niður á grunnvatn. Það er erfitt að lesa í GPS gögn, þar sem allt svæðið er orðið beyglað og brotið eftir umbrotin sem hófust þann 10. Nóvember 2023 og síðasta eldgos hefur aukið á þau umbrot. Svæðið er að færast upp eða niður, eftir því hvort um er að austan eða vestan við sigdalina. Það mun taka nokkra daga að sjá hversu hröð þenslan er í Svartsengi núna. Kvikan sem gaus núna virðist hafa komið frá Skipastígahrauni og Eldvörpum í sillu sem er þar undir, vestur af því svæði þar sem gaus núna við Hagafell. Það virðist sem að sillan sem er undir Svartsengi hafi ekki hlaupið núna í þessu eldgosi, þar sem ekkert sig mældist við eldgosið þar í kjölfarið á þessu eldgosi.
Hámarkstími þangað til að næsta eldgos verður er 30 dagar, með skekkjumörkum upp á hámark átta daga. Þetta tímabil gæti þó verið styttra, þar sem þenslan er að aukast. Það er samt mikil óvissa í þessu, vegna þess hvernig jarðskorpan er orðin við Grindavík.
Eldgosin eru að færast suður með þessu svæði og það eru slæmar fréttir þar sem næsta eldgos verður þá inni í Grindavík og niður að höfninni, þegar næsta eldgos verður eftir rúmlega 30 daga. Staðan núna er sú að ekki er hægt að búa í Grindavík vegna þess hversu hættulegt það er vegna sprungna. Það hefur einnig orðið meiriháttar tjón á innviðum í Grindavík og að auki, þá hefur bæst í það tjón sem var fyrir á húsum, vegum og fleiru.
Þetta er stutt grein um stöðuna í Sundhnúkagígum þann 2. Janúar 2024. Þessi grein er skrifuð klukkan 21:54. Upplýsingar hérna geta orðið úreltar án viðvörunnar.
Þenslan í Svartsengi virðist vera búinn að ná hámarksstöðu miðað við 18. Desember 2023 samkvæmt GPS stöðvum. Þenslan núna er ekki jöfn á öllum GPS stöðvunum og ég er ekki viss hver er ástæðan fyrir þessu en líklegasta ástæðan er að innflæði inn í sillunar í Svartsengi er ójafnt af einhverjum ástæðum. Af hverju það er veit ég ekki en eitthvað hefur mögulega breyst innan í eldstöðinni Svartsengi þegar það kemur að innflæði kviku þegar það kemur að sillunum.
Það er ekki hægt að vita hvenær næsta eldgos verður. Þegar þessi grein er skrifuð þá er ég að áætla að næsta eldgos verði eftir um sjö daga, það er í kringum 9. Janúar 2024. Það gæti orðið eldgos fyrr en það gæti einnig orðið eldgos seinna. Það er ekki hægt að segja til um það hvar næsta eldgos verður. Það er reiknað með því að næsta eldgos verði á svipuðum stað eða á þeim stað þar sem eldgosið í Sundahnúkum varð þann 18. Desember 2023.
Ef eitthvað gerist. Þá mun ég skrifa nýja grein eins fljótt og hægt er. Þetta er síðasta greinin þangað til eitthvað gerist í Sundhnúkagígum.
Styrkir
Það er hægt að styrkja mína vinnu með því að millifæra beint á mig það sem fólk vill eða nota PayPal til þess að styrkja mig með öllum þeim vandamálum sem fylgja PayPal. Hægt er að finna bankaupplýsingar á síðunni styrkir. Takk fyrir stuðninginn. 🙂
Þetta er stutt grein um stöðu mála í Sundhnúkagígum þann 27. Desember 2023 klukkan 22:01. Upplýsingar hérna geta orðið úreltar án viðvörunnar.
Það er þensla að eiga sér stað núna í eldstöðinni Svartsengi. Núverandi hraði þenslunnar er um 10mm á dag. Það þýðir að minnsti möguleiki tíma þegar næsta eldgos hefst verður þann 30. Desember 2023 að mínu áliti en það gæti einnig orðið eins seint og 10. Janúar 2024. Þetta er mjög hröð þensla en þar sem Svartsengi lækkaði aðeins um 80mm þegar síðasta eldgos varð, þá tekur það styttri tíma að þenjast út í þannig stöðu að eldgos geti hafist. Það þýðir að kvikan sem er núna að flæða inn, hefur minna pláss þangað til að þeirri stöðu er náð í jarðskorpunni að eldgos geti hafist. Það þýðir einnig að allt ferlið tekur styttri tíma en áður.
Það er einnig jarðskjálftavirkni í eldstöðinni Fagradalsfjall. Þar er virkni eftir sprungu sem hefur ekki verið virk með þessum hætti áður, eftir því sem ég kemst næst. Afhverju þarna er jarðskjálftavirkni er óljóst en þetta gæti verið merki um að þarna verði eldgos í framtíðinni. Þar sem eldgos verða í Fagradalsfjalli á um tíu mánaða fresti, þá má reikna með að þar gjósi á tímabilinu Maí til September 2024 næst. Það mun koma betur í ljós eftir því sem líður á hvað er að gerast í Fagradalsfjalli. Gervihnattamyndir frá Google Earth sýna sprungu á þessu svæði þar sem jarðskjálftavirknin er að eiga sér stað. Þetta er hugsanlega þekkt sprunga en ég hef ekki þær upplýsingar eins og er.
Það er ekki hægt að segja til um það hvað gerist næst í Fagradalsfjalli og síðan í Svartsengi. Staðan getur breyst mjög hratt og án nokkurs fyrirvara. Þetta getur breyst svo hratt að ég er ekki viss um að ég nái að setja inn uppfærslu um þetta ef ég er úti ef eitthvað fer af stað.
Ef eitthvað gerist. Þá mun ég setja inn uppfærslu eins fljótt og ég get. Næsta uppfærsla um stöðu mála ætti að verða þann 2. Janúar 2024 ef ekkert gerist þangað til.
Þetta er stutt grein um stöðu mála við Sundhnúkagíga eftir því sem ég best veit. Þessi grein getur orðið úrelt án viðvörunnar. Þessi grein er skrifuð þann 22. Desember 2023 klukkan 21:39.
Þenslan er hafin aftur í eldstöðinni Svartsengi og það virðist sem að þenslan hafi jafnvel hafist áður en eldgosinu lauk við Sundhnúkagíga. Þegar þessi grein er skrifuð, þá er þenslan aðeins um 5 til 8mm á dag, áður en eldgosið hófst þá var þenslan um 10mm á dag en það hafði hægst talsvert á þenslunni áður en það fór að gjósa og nýtt kvikuinnskot myndast. Það munu ekki öll kvikuinnskot koma af stað eldgosum en plássið fyrir kvikuna er mjög lítið eftir kvikuinnskotið sem varð þann 10. Nóvember. Þar sem það kvikuinnskot virðist hafa notað upp allt plássið í jarðskorpunni í sigdalnum á þessu svæði þar sem sigdalurinn myndaðist þann 10. Nóvember 2023.
Jarðskjálftavirkni jókst í sigdalnum um leið og það fór að draga úr eldgosinu í Sundhnúkagígum. Það þýðir að mínu áliti að kvikan í Svartsengi er að leita sér að leið út og reyna að gjósa öll á sama tíma, eða mögulega eins nálægt því og hægt er. Það virðist sem að 4,1 km löng sprungan sem myndaðist í eldgosinu þann 18. Desember hafi ekki verið nóg fyrir þann þrýsting sem er í eldstöðinni Svartsengi þegar þessi grein er skrifuð. Þetta er áhugavert en gæti einnig verið vísbending um það að þetta svæði sé að verða mjög hættulegt. Ég tek það einnig fram að ég veit ekki hvort að þetta gerist, þar sem vísbendingar eru eitt og síðan það sem gerist er allt annað.
Ef eitthvað gerist. Þá mun ég skrifa nýja grein eins fljótt og ég get.
Þetta er stutt grein og upplýsingar hérna geta orðið úreltar mjög hratt og án viðvörunnar.
Eldgosið sem hófst í Sundhnúkagígum þann 18. Desember klukkan 22:17 er lokið eftir því sem ég fæ best séð. Þetta var mjög stórt eldgos, þó svo að það hafi varað í mjög skamman tíma. Hrunið sem kom upp þakti um 3,7 km2 (ferkílómetra). Meirihluti af eldgosinu átti sér stað í fyrstu 24 til 48 klukkustundum. Það eru komnir fram fyrstu merki um það að þensla sé hafin aftur í Svartsengi, ef að þenslan er á sama hraða og fyrir eldgosið 18. Desember, þá mun það aðeins taka um 8 til 10 daga að ná sömu stöðu og áður en eldgos hófst. Það er stór spurning hvort að það gerist núna, þar sem það er ennþá mikið magn af kviku í Svartsengi og sú kvika getur farið af stað til yfirborðs án þess að þensla eigi sér stað og komið af stað stærra eldgosi. Hvort að það gerist er eitthvað sem þarf að bíða og sjá hvað gerist.
Myndbönd af svæðinu þar sem gaus sýna mikla afgösun eiga sér stað á svæðinu þar sem gaus. Þetta er áhugavert og ég er ekki alveg viss afhverju þetta er að eiga sér stað. Það er möguleiki á því að í kvikuganginum sé mikil kvika sem er að losa sig við gas en hefur ekki orkuna í að gjósa. Það er smá möguleiki á því að nýtt eldgos hefjist á sama stað. Hvort að það gerist er ekki hægt að segja til um.
Þessi jarðskjálftavirkni er mjög áhugaverð og hófst í gær (20. Desember 2023) og hefur sama munstur og jarðskjálftavirknin rétt áður en það fór að gjósa í Sundhnúkagígum þann 18. Desember. Hvort að það sé að gerast núna verður að koma í ljós. Þetta er bíða og sjá staða núna.
Þetta er síðasta uppfærslan, nema ef eitthvað gerist á þessu svæði sem er líklegt miðað við þá virkni sem er að koma fram en spurningin er alltaf hvenær eitthvað gerist.
Þetta er stutt grein og upplýsingar hérna geta orðið úreltar án viðvörunnar.
Það stefnir í að þetta eldgos verði stutt og það er venjulega þannig sem eldgos eru á Íslandi. Hugsanlega mun þessu eldgosi ljúka milli Föstudags og Mánudags, en það fer eftir því hvað gerist.
Hraunflæði frá þeim gígum sem eru að gjósa núna er í kringum 10m3/sek samkvæmt fréttum. Þetta er mjög lítið miðað við upphaf eldgossins.
Það sést á GPS gögnum að Svartsengi hefur lækkað um 80mm síðan á Mánudaginn. Þetta þýðir einnig að það er mikil kvika í Svartsengi sem getur gosið án viðvörunnar.
Jarðskjálftavirkni í sigdalnum er byrjuð aftur. Þessi jarðskjálftavirkni er áhugaverð en ég er ekki ennþá viss hvað þessi jarðskjálftavirkni þýðir þegar þessi grein er skrifuð.
Veðurstofan segir að eldgosið er stöðugt, þó svo að það sé lítið þegar þessi grein er skrifuð.
Hraunbreiðan er núna 3,7 km2 (ferkílómetrar) að stærð samkvæmt fréttum.
Samkvæmt Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, þá er kvikan sem er að koma upp aðeins þróaðri en kvikan sem kom upp í Fagradalsfjalli. Það þýðir að kvikan stoppaði aðeins á leiðinni upp í jarðskorpunni og breytti efnasamsetningunni áður en eldgos hófst. Hægt er að lesa þessa rannsókn hérna á vefsíðu Háskóla Íslands.
Þetta er önnur gerð af hrauni en gaus þarna fyrir 2400 árum síðan. Afhverju það er veit ég ekki og það mun taka sérfræðinga nokkur ár að finna út afhverju það er, ásamt því að rannsaka þetta og birta vísindagreinar í vísindatímaritum um þetta.
Það er áhugavert að fjallið Þorbjörn heldur áfram að síga samkvæmt GPS gögnum frá því í dag (20. Desember 2023). Veðurstofan hefur gefið út nýtt kort með hættusvæðinu og er hægt að sjá það hérna á vef Veðurstofunnar.
Þetta eru allar þær upplýsingar sem ég veit um í dag (20. Desember 2023). Næsta grein um stöðu mála ætti að koma á morgun ef ekkert sérstakt gerist. Ef eitthvað gerist, þá mun ég reyna að birta nýja grein eins fljótt og hægt er.
Þetta er stutt grein og upplýsingar hérna geta orðið úreltar án fyrirvara. Þessi grein er skrifuð þann 19. Desember 2023 klukkan 22:32.
Ég reyni að lesa allar þær upplýsingar sem ég get yfir daginn og lesa eins mikið af gögnum og hægt er. Þar sem ég hef ekki aðgang að öllum vísindagögnum sem er safnað. Þá verð ég að treysta á fréttir til að fá þær upplýsingar eins og hægt er, frá Veðurstofunni og öðrum aðilum eftir því sem hægt er. Þetta hefur alltaf verið svona og er ekkert óeðlilegt.
Eldgosið er núna 2 til 4 gígar. Ég er ekki alveg viss hversu mörg svæði eru að gjósa núna þegar ég skrifa þessa grein.
Kvikuinnskotið sem myndaðist þann 18. Desember virðist fara inn í kvikuinnskotið sem myndaðist þann 10. Nóvember. Það þýðir að hugsanlega hefur það kvikuinnskot endurvirkast við þann atburð. Það þýðir að hugsanlega getur farið að gjósa eftir öllum eða hluta 15 km kvikuganginum á handahófskenndum stöðum.
Núverandi flæði virðist vera í kringum 50m3/sek þegar þessi grein er skrifuð. Ég hef verið að heyra tölur sem fóru eins hátt og 800m3/sek í upphafi eldgossins í gær (18. Desember) en þessi tala er fyrir mér óstaðfest. Kvikuflæðið lækkaði niður til 100 til 500m3/sek fljótlega eftir að eldgosið hófst.
Samkvæmt GPS gögnum sem ég hef heyrt af í dag. Þá virðist sem að Svartsengi hafi lækkað um 50mm í dag. Ég vonast til þess að sjá þetta betur á morgun (20. Desember) þegar ný GPS gögn koma vonandi inn.
Það er mikil óvissa með þetta eldgos og hvað getur gerst næst í þessu. Þar sem það er mikið af kviku í eldstöðinni í Svartsengi sem hefur ekki ennþá gosið. Það er möguleiki á því að nýtt innflæði af kviku úr möttlinum sem gæti sett meira af stað. Innflæði kviku af miklu dýpi getur gerst án mikillar viðvörunnar eftir því sem þrýstingur minnkar í Svartsengi í sillunni þar (eða kvikuhólfi).
Ég mun setja inn næstu uppfærslu á morgun (20. Desember). Ef eitthvað gerist, þá mun næsta uppfærsla koma fyrr inn.
Samþykki fyrir vefköku
Þessi vefsíða notar kökur til þess að muna stillingar og muna eftir stillingum. Þegar þú samþykkir kökur þá samþykkir þú allar kökur frá þessari vefsíðu.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.