Í gær (10. Nóvember 2024) varð jarðskjálfti í Öskju með stærðina Mw3,0. Það komu fáir eftirskjálftar í kjölfarið á þessum jarðskjálfta en síðan hefur ekkert meira gerst í kjölfarið á þessari virkni.
![Græn stjarna í Öskju, sem er neðst á kortinu. Auk þess er einn blár punktur í eldstöðinni Kröflu sem sýnir litla jarðskjálftavirkni þar.](https://eldstod.com/wp-content/uploads/2024/11/241111_0445.png)
Það er kvikuinnflæði í Öskju núna en það er mitt álit að þetta kvikuinnflæði sé ekki líklegt til þess að valda eldgosi. Ég veit ekki hvort að þessi jarðskjálfti sem varð í Öskju sé tengdur þessu innflæði kviku inn í Öskju.