Jarðskjálfti með stærðina Mw5,9 í Íran, nærri landamærunum að Tyrklandi

Í dag (28. Janúar 2023) varð jarðskjálfti með stærðina Mw5,9 í Íran, ekki langt frá landamærunum að Tyrklandi. Samkvæmt EMSC þá fannst þessi jarðskjálfti yfir stórt svæði. Ég veit ekki hvort að það hafi orðið eitthvað tjón en það er mjög líklegt ef gæði bygginga eru léleg. Samkvæmt gögnum frá EMSC, þá fannst þessi jarðskjálfti yfir stórt svæði.

Upplýsingar um jarðskjálftann er að finna hérna hjá EMSC. Stærsti eftirskjálftinn sem hefur komið er með stærðina mb4,5 og er hægt að finna upplýsingar um þennan jarðskjálfta hérna á vefsíðu EMSC.