Í gær (15-Apríl-2021) var tilkynnt (seint) í fréttum að sterkari órói hefði greinst í eldgosinu síðan á miðnætti. Þetta venjulega gerist þegar nýir gígar opnast. Veður er mjög slæmt á svæðinu og vindhviður hafa verið að ná 41 m/s með mikilli rigningu í gær og aðstæður þarna hafa gert það ekki er hægt að fylgjast með eldgosinu á vefmyndavélum og biluðu vefmyndavélar Rúv síðustu nótt vegna veðurs. Samkvæmt síðustu veðurspá þá mun veður ekki lagast á svæðinu fyrr en seint í dag (Föstudaginn 16-Apríl-2021). Aukinn órói gæti verið vegna veðurs en oftast þá hefur veður ekki áhrif á lægri tíðniböndin (0.5 – 1Hz) en veður hefur meiri áhrif á hærri tíðniböndum (2 – 4Hz). Hvað er að gerast þarna mun ekki koma í ljós fyrr en veður batnar.
Upplýsingar um eldstöðina Krýsuvík.
Fréttir og vefmyndavélar
Þetta er stutt grein um eldgosið í Fragradalsfjalli sem er hluti af eldstöðvarkerfi Krýsuvík-Trölladyngju.
Í gær (13-Apríl-2021) um klukkan 09:00 gerðist þetta hérna.
Fjórir nýjir gígar fóru að gjósa. Þetta minnkaði ekki það hraunflæði sem er að koma upp í eldgosinu sem er að koma upp í öðrum gígum sem eru að gjósa.
Núna eru því samtals átta gígar að gjósa í Fagradalsfjalli. Svæðið er hægt og rólega að fara undir nýtt hraun eftir því sem eldgosið varir lengur.
Sunnudaginn 18-Apríl-2021 verður eldgosið búið að vara í einn mánuð (30 daga*). *Þetta er samkvæmt dagatalsreiknivefsíðu miðað við 30 daga mánuð.
Það er ennþá mjög mikil hætta á því að nýir gígar opnist bæði norður og suður af gíg 1.
Það gas sem kemur upp í eldgosinu hefur meira en tvöfaldast á síðustu dögum. Þetta er farið að verða vandamál ef vindur blæs gasinu yfir íbúðarbyggð.
Ég er ekki með frekari uppfærslur af stöðu eldgossins eins og er. Ef eitthvað meira gerist þá mun ég setja inn uppfærslu eins fljótt og hægt er. Þar sem það er hætta á því að eldgosið muni vara í mjög langan tíma, allt að nokkur ár þá er möguleiki á því að ég breyti því hvenær ég set inn uppfærslur hérna. Ég ætla að finna útúr því eftir því sem eldgosið varir lengur.
Þetta er stutt grein um eldgosið í Fagradalsfjalli sem er hluti af eldstöðvarkerfinu Krýsuvík-Trölladyngja.
Það hefur mikið verið að gerast þessa vikuna og hægt er að lesa eldri greinar um það sem gerðist fyrr í vikunni.
Samkvæmt mælingum frá Háskóla Íslands þá kemur upp 50% meira hraun núna en í upphafi eldgossins þann 19-Mars-2021. Það kemur einnig upp mun meira af gasi í eldgosinu núna. Það hefur valdið vandræðum háð vindátt.
Það er mikil hætta á því að eldgos hefjist suður af Geldingadalir þar sem eldgosið hófst. Það er einnig mikil hætta á því að eldgos hefjist norður af gígnum sem byrjaði að gjósa þann 5-Apríl-2021.
Það er engin breyting á þenslu. Hægt hefur á þenslunni en ekki hafa aðrar breytingar orðið.
Það er áframhaldandi jarðskjálftavirkni í kvikuinnskotinu frá Keili til Fagradalsfjalls.
Það er ljóst að breytingar sem geta orðið munu verða án mikils fyrirvara og án þess að það komi fram jarðskjálftavirkni eða mjög lítil jarðskjálftavirkni mun koma fram.
Næsta uppfærsla verður þann 16-Apríl-2021 ef ekkert mikið gerist. Þar sem þetta eldgos er alltaf að gerast þá er mjög líklegt að helgin og næsta vika verði mjög áhugaverð. Ef eitthvað gerist þá mun ég skrifa grein eins fljótt og ég mögulega get.
Uppfærsla klukkan 22:51
Veðurstofan gaf út þetta hérna kort og kom með þessar upplýsingar á síðunni hjá sér í kvöld um hættuna á því að nýjar gossprungur geti opnast norður og suður af núverandi eldgosum í Fagradalsfjalli. Síðan hjá Veðurstofunni er uppfærð reglulega og ef þú ert að skoða þetta löngu eftir 9 og 10 Apríl þá er möguleiki á því að þú þurfir að leita eftir þessum upplýsingum.
Kortið sýnir það svæði þar sem er hætta á að eldgos komi upp án viðvörunnar.
Uppfærsla klukkan 15:41 þann 10-Apríl-2021
Um klukkan 03:15 þann 10-Apríl-2021 opnaðist ný gossprunga sem hefur fengið númerið 4 í Fagradalsfjalli. Þessi gossprunga opnaðist milli gígsins númer 2 (annan dag páska) og gígs númer 3 (7-Apríl). Eldgosið frá nýja gígnum virðist ekki vera mjög stórt en það opnaðist undir nýju hrauni sem hafði runnið þarna nokkrum dögum áður frá gíg númer 2. Í gíg 1 (19-Mars) þá lækkaði talsvert mikið í eldgosinu þar á meðan gígur númer 4 fór að gjósa.
Ég tek eftir að nýjar gossprungur virðast vera að opnast með meiri hraða en áður og virðist stærsta breytingin hafa átt sér stað í því eftir að gígur númer 3 fór að gjósa.
Yfirlit yfir nýjar gossprungur í Fagradalsfjalli hingað til.
Tíminn sem er á milli þess að nýjar sprungur opnast virðist vera á milli 3 til 4 dagar eins og er. Mig grunar að það gæti breyst fljótlega og án mikillar viðvörunnar. Það er einnig möguleiki á því að nýjar sprungur sem munu opnast í framtíðinni verði stærri og lengri en hefur verið að gerast síðustu daga eftir því sem eldgosið varir lengur. Það virðast vera stigsbreytingar í eldgosinu sem er núna í Fagradalsfjalli. Ég er ekki viss hvaða stig eldgosið er í núna þar sem ég hef aldrei sé svona hegðun í eldgosi áður og mér er ekki kunnugt um svona hegðun í eldgosi í neinni eldstöð erlendis frá þessa stundina.
Þetta er stutt grein um stöðuna í eldgosinu í Fagradalsfjalli sem er hluti af eldstöðvarkerfi Krýsuvík-Tröllardyngju.
Síðustu 24 klukkutíma hefur mjög mikið verið að gerast í eldgosinu. Hérna er það helst eftir minni bestu þekkingu á stöðunni.
Ný sprunga fór að gjósa á milli Geldingadalir og gígsins sem fór að gjósa þann 5-Apríl-2021 (annar í Páskum). Nýja gossprungan er milli þessara tveggja eldgosa.
Hraunbreiðunar hafa núna runnið saman í eina stóra hraunbreiðu sem nær frá Geldingadalir niður til Meradalir.
Vefmyndavél Morgunblaðsins fór undir hraun eins og hægt er að lesa um hérna. Búnaður sem Veðurstofan var með á þessu svæði var einnig í hættu að fara undir hraun. Ég veit ekki hvort að það tókst að bjarga þeim búnaði en það átti að gera tilraun til þess að bjarga þeim búnaði.
Það er hætta á því að eldgosin sameinist í eitt stórt eldgos og eina stóra eldgosasprungu. Það er ekki hægt að segja til um það hvenær þetta gæti eða hvort að þetta muni gerast.
Það hefur ekki orðið vart við neinn samdrátt í þenslu á GPS mælum á Reykjanesskaga eins og hægt er að sjá hérna (síðan er á ensku).
Það er mikil hætta á því að það fari að gjósa suð-vestur af núverandi eldgosi með nýjum sprungum. Það hefur ekki ennþá gerst en sá möguleiki er mjög mikill.
Það er erfitt að spá til um framgang og þróun þessa eldgoss og nýjar sprungur geta opnast án fyrirvara. Ef ekkert stórt gerist þá verður næsta uppfærsla um eldgosið þann Föstudaginn 9-Apríl-2021.
Þetta er stutt uppfærsla um stöðuna í eldgosinu í Fagradalsfjalli sem er hluti af eldstöðvarkerfi Krýsuvík-Trölladyngju.
Síðastliðna nótt var ný sprunga uppgötvuð milli nýja og gömlu gíganna. Sprungan er um 150 metra löng og þar streymir heitt loft upp.
Það hefur einnig verið tilkynnt að ný sprunga er að myndast norður af nýju gígunum og þar hefur land einnig verið að síga. Engar aðrar breytingar hafa verið tilkynntar þegar þessi grein er skrifuð.
Það hraun sem flæðir niður í Meradalir kólnar mjög hratt þegar þangað er komið. Hraunáin fer hinsvegar fram mjög hratt niður í Meradali og það hraun er á mikilli hreyfingu.
Það er núna reiknað með að þetta sé upphafið af mjög löngu eldgosatímabili á Reykjanesskaga sem mun vara í margar aldir með hléum sem eru 10 til 20 ár með eldgosavirkni sem varir í 30 til 50 ár þess á milli.
Ástandið á Fagradalsfjalli er að breytast mjög hratt á hverjum degi og hættan á að nýtt eldgos hefjist án viðvörunar er núna mjög mikil.
Þetta er stutt grein um stöðuna í eldgosinu í Fagradalsfjalli sem er hluti af eldstöðinni Krýsuvik-Trölladyngja.
Það hefur verið örlítil aukning í smáskjálftum eftir kvikuganginum eftir að það fór að gjósa á nýjum stað í Fagradalsfjalli. Meirihluti af þessum litlu jarðskjálftum eiga sér stað nærri Keili.
Það hefur verið tilkynnt að hraunflæðið er núna meira með nýju gígunum með hraunflæðinu úr eldri gígnum (Geldingadalir). Samtals er hraunflæðið talið vera um 10m3/sekúndu.
Gígar hafa byggst upp á nýja staðnum þar sem fór að gjósa í dag. Það mun hugsanlega breyta hraunflæðinu í framtíðinni og það hraunflæði gæti náð til Geldingadals þegar sú breyting verður.
Það er mikil hætta á að nýjar gossprungur opnist bæði norður og suður af Geldingadalir (Fyrsta eldgosið) og síðan norður af eldgosinu í Fagradalsfjalli (nýja eldgosið).
Hraunið flæðir núna niður í Meradalir. Þessi dalur er miklu stærri en Geldingadalir og mun ekki fyllast af hrauni svo einfaldlega. Það virðist vera meira vatn í þessum dal og það gæti valdið sprengingum þegar hraunið fer neðar í dalinn.
Þessa stundina eru ekki neinar aðrar fréttir af stöðu mála eftir því sem ég kemst næst. Ef ekkert stórt gerist í eldgosinu í Fagradalsfjalli. Þá verður næsta uppfærsla Föstudaginn 9-Apríl-2021.
Ný gosssprunga fór að opnast klukkan 11:37 þann 5-Apríl-2021 norð-austur af núverandi eldgosi í Geldingadalir en þá varð jarðskjálfti með stærðina Mw1,5 í nágrenni við Fagradalsfjall (mjög líklega). Nýja gossprungan er að stækka þegar þessi grein er skrifuð og er mjög líklega orðin 1,2 km að lengd miðað við það sem ég er að sjá á vefmyndavél Rúv núna.
Ég mun setja inn frekari upplýsingar þegar ég veit meira um stöðu mála.
Uppfærsla klukkan 16:39
Stærri sprungan er um 300 metra löng samkvæmt mælingum en hluti af sprungunni virðist vera undir sínu eigin hraunflóði miðað við það sem ég er að sjá á myndböndum og á vefstreymi af þessu eldgosi. Seinni sprungan er um 10 til 30 metra löng. Það virðist síðan vera einn stakur gígur fyrir utan sprungurnar. Hraunið flæðir núna niður í Meradali sem er beint fyrir neðan nýju gossprungunnar. Hraunið gæti fljótlega náð í það sem virðist vera lítið vatn þarna eða hugsanlega þurrt vatn sem er þarna. Eldgosið í upprunalegu gígunum heldur áfram en með miklu minni krafti en áður. Þetta gæti verið aðeins tímabundin breyting en það er erfitt að segja til um það með vissu hvað mun gerast.
Þetta er stutt uppfærsla um stöðuna í eldgosinu í Geldingadalir (fyrrum, þar sem dalurinn er núna fullur af hrauni eða við það að fyllast af hrauni). Eldgosið á sér stað í eldstöðinni Krýsuvík-Trölladyngja. Eldgosið hefur verið stöðugt alla vikuna. Aðfaranótt Sunnudagsins 28-Mars-2021 þá hruni önnur hliðin af gígunum í hraunið sem er þar fyrir neðan. Báðir gíganir eru núna rúmlega að sömu stærð.
Það hraun sem er að koma upp í eldgosinu er frumstætt Þóleiít samkvæmt efnaskýrslu frá Jarðfræðideild Háskóla Íslands sem hægt er að lesa hérna (pdf á ensku).
Báðir gíganir eru óstöðugir og hrun í þeim eru mjög algeng. Þessi grjóthrun valda því að útlit gíganga breytist mjög hratt og án nokkurs fyrirvara.
Íslendingar halda áfram að láta eins of fífl fyrir framan vefmyndavélar sem sýnda eldgosið (að ég held allar vefmyndavélar). Vefmyndavél Rúv er stór þarna (með sólarrafhlöðum og öllu tilheyrandi) sem auðvelt er að forðast.
Hraunsuða er algeng í hrauninu frá eldgosinu og brýst oft upp í gegnum nýja jarðskorpuna sem þarna hefur myndast án fyrirvara og endurmyndar hraunið á mjög skömmum tíma.
Hraunslettuvirkni er mjög breytileg en magn hrauns sem kemur upp í eldsgosinu virðist vera mjög stöðugt miðað við það sem sést á vefmyndavélum og samkvæmt því sem sérfræðingar hafa verið að sjá í eldgosinu og samkvæmt síðustu fréttum sem ég fann af eldgosinu.
Það er óljóst hvenær hraunið fer að flæða úr Geldingadalir (fyrrum). Það mun hugsanlega gerst um helgina eða í næstu viku.
Við skrif þessar greinar þá er að taka eftir því að margt í aðstæðum í gígnum bendir til þess að hugsanlega sé stórt hrun yfirvofandi í þeim. Þá sérstaklega þeim gíg sem er hægra megin á skjánum. Hvenær slíkt hrun verður og hvort að það verður get ég ekki sagt til um. Það sem ég er hinsvegar að sjá bendir til þess að gíganir sem þarna eru séu ekkert mjög stöðugir þegar þessi grein er skrifuð.
Þegar ég skrifaði ensku greinina (þessar greinar eru yfirleitt samhljóða) þá varð stórt hrun úr gígnum sem er vinstra megin á skjánum (ég veit ekki hvað er suður og norður þarna). Við það hrun þá virtist gosrásin hafa aðeins lokast og það jók hraunslettuvirkni í gígnum vinstra megin mjög mikið í skamman tíma meðan gosrásin var að hreinsa sig af því grjóti sem hafði hrunið ofan í hana.
Þessa stundina er ekkert sem bendir til þess að eldgosinu sé að fara að ljúka. Það er möguleiki á því að þetta eldgos muni vara í mjög langan tíma. Næsta uppfærsla um þetta eldgos verður þann 9-Apríl-2021 ef ekkert stórt gerist á þeim tíma.
Uppfærsla á grein þann 3-Apríl-2021 klukkan 14:22
Það er núna í gígnum sem er norðar (til hægri á skjánum?) smá hraunfoss. Þetta er ekkert rosalega stór hraunfoss en hann er samt nokkra metra hár. Það er mikill munur á hraunslettu virkni í gígnum og gíganir sem eru búnir að hlaðast upp eru báðir mjög óstöðugir. Það verða mörg hrun á hverjum degi og breytingar á hverjum degi.
Styrkir
Það er hægt að styrkja mína vinnu hérna með því að nota PayPal takkann hérna á vefsíðunni. Takk fyrir stuðninginn. 🙂
Auglýsingar
Ég sótti aftur um aðild að Amazon Associates og fékk þar inn næstu 180 daga þar sem á þeim tíma þarf ég að fá sölu til að geta haldið aðganginum opnum (þessi regla gildir um alla svona aðganga hjá Amazon núna). Ef þú kaupir vörur af Amazon þá er hægt að nota auglýsinga borðana hérna á síðunni til þess að versla og um leið styrkja mig um smá upphæð í leiðinni.
Þetta er stutt grein um eldgosið í Geldingadalir þann 27-Mars-2021. Þetta eldgos núna flokkast sem eldgos í eldstöðinni Krýsuvík.
Eldgosið virðist vera hægt og rólega að aukast. Litlu gíganir (til vinstri miðað við vefmyndavélina á Rúv) hafa núna runnið saman í einn stóran gíg. Það er möguleiki á að þeir tveir gígar sem gýs núna upp úr renni saman í einn stóran gíg.
Kvikan í þessu eldgosi kemur af 17 til 20 km dýpi og á upptök sín líklega mun dýpra en það og það getur valdið eldgosi í mjög langan tíma.
Geldingadalir eru núna næstum því orðnir fullir af hrauni. Myndbönd hafa komið fram á samfélagsmiðlum sem sýna hversu rosalega hættulegt hraunið er þarna núna. Það á alls ekki að ganga á nýju hrauninu. Það mun taka áratugi og jafnvel aldir fyrir hraunið þarna að kólna niður í öruggt hitastig.
Þar sem hraunið er sem þykkast, þá er hraunið talið vera um 20 til 30 metra þykkt.
Það eru sveiflur í eldgosinu. Stundum er eldgosið aðeins meira og stundum aðeins minna miðað við það sem sést á vefmyndavél Rúv.
Það virðist sem að þarna sé fjall að byggjast upp. Hvernig það fer síðan er erfitt að segjast til um.
Almennt þá er lítið að frétta af þessu eldgosi og litlar breytingar hafa átt sér stað undanfarið síðan eldgosið hófst fyrir viku síðan (19-Mars-2021). Næsta uppfærsla um eldgosið verður þann 2-Apríl-2021 vonandi ef ekkert stórt gerist í eldgosinu.
Þetta er ekki grein um stöðuna á eldgosinu. Það hefur lítið breyst í eldgosinu þegar þessi grein er skrifuð.
Háskóli Íslands hefur gefið út skýrslu sem hægt er að lesa hérna (á ensku) sem sýnir að kvikan sem er núna að koma upp af 17 km til 20 dýpi. Jarðskorpan á Reykjanesskaga er um 17 km þykk. Hægt er að sjá 3D kort af eldgosinu hérna. Ég held að þetta kort verði uppfært reglulega af ÍSOR. Kvikan sem kemur núna upp í eldgosinu er hluti af Þóleiít (Wikipedia) kviku. Þegar kvikan kemur upp á yfirborðið er hún um 1180C gráðu heit.
Það sem er einnig að gerast er að þarna virðist vera að myndast dyngju (Wikipedia) eldstöð. Það er spurning hvort að þarna myndist ný kvikuhólf í jarðskorpunni þar sem kvikugangurinn er núna til staðar. Það er áframhaldandi hætta á því að nýjir gígar opnist án viðvörunnar. Miðað við þá jarðskjálftavirkni sem hefur átt sér stað þá er ljóst að kvikugangurinn er ennþá virkur frekar en að hann hafi breyst í jarðskorpu með kælingu.
Það er núna reikna með að Geldingadalir muni fyllast af hrauni á næstu 8 til 18 dögum miðað við flæði í eldgosinu eins og það er núna. Þegar það gerist þá mun hraunið flæða yfir í næsta dal sem ég hef ekki nafnið á. Ef að eldgosið varir nógu lengi þá mun hraunið á endanum flæða niður í Nátthagadal.
Samþykki fyrir vefköku
Þessi vefsíða notar kökur til þess að muna stillingar og muna eftir stillingum. Þegar þú samþykkir kökur þá samþykkir þú allar kökur frá þessari vefsíðu.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.