Þessar upplýsingar munu verða úreltar mjög hratt. Þar sem atburðarrásin er mjög hröð í Bárðarbungu.
- Það er mjög mikil jarðskjálftavirkni undir Dyngjujökli. Það eiga sér stað 3 til 5 jarðskjálftar á hverri sekúndu (besta mat sem ég hef).
- Jarðskjálftar hafa stækkað.
- Virkni virðist hafa aukist í Bárðarbungu. Þó hefur ekki neitt eldgos átt sér stað ennþá.
- Það bendir ekkert til þess farið sé að draga úr þessari virkni.
- Innskotið í Bárðarbungu lengist og breikkar. Það er núna í kringum 40 km langt (eftir því sem ég kemst næst). Hægt hefur á myndun þessa kvikuinnskots vegna þess að jarðskorpan sem það er fara í gengum er harðari en áður. Harðari jarðskorpa þýðir að fleiri og stærri jarðskjálftar koma fram þegar kvikuinnskotið brýtur bergið.
Það hefur verið mjög mikil jarðskjálftavirkni í Bárðarbungu eins og sjá má á þessari mynd. Höfundaréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Fjöldi jarðskjálfta sést mjög vel hérna. Það sést einnig að jarðskjálftavirknin er mjög þétt þessa stundina. Höfundaréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Óróinn er orðinn mjög mikill eins og sést á SIL stöðinni í Dyngjuhálsi. Þessi stöð er næst kvikuinnskotinu í augnablikinu. Þetta er frá því í dag klukkan 13:24. Höfundaréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Óróinn er einnig orðin mjög mikill á SIL stöðinni í Öskju eins og sést hérna. Þetta er frá því klukkan 13:24 í dag (24-Ágúst-2014). Höfundaréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Núverandi lengd kvikuinnskotsins frá Bárðarbungu og undir Dyngjujökul. Þetta eru jarðskjálftarnir frá 16-Ágúst-2014. Höfundaréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Óróinn virðist aukast í hvert skipti sem kvikuinnflæðið eykst í kvikuinnskotið. Stórir jarðskjálftar eiga sér stað þegar megineldstöðin aðlagar sig að þessu kvikuflæði útúr henni. Það eru vísbendingar um það að þessi kvika komi af miklu dýpi í jarðskorpunni, en skortur á djúpum jarðskjálftum gera það erfitt að staðfesta þær hugmyndir.
Jarðskjálftinn sem var með stærðina 5,3 eins og hann kom fram á jarðskjálftamælinum mínum í Heklubyggð. Þessi mynd er undir Creative Commons leyfi. Sjá nánar á CC Leyfi síðunni.
Jarðskjálftinn sem var með stærðina 5,3 eins og hann kom fram á jarðskjálftamælinum mínum í Böðvarshólum. Þessi mynd er undir Creative Commons leyfi. Sjá nánar á CC Leyfi síðunni.
Jarðskjálfti sem var með stærðina 5,1 eins og hann kom fram á jarðskjálftamælinum mínum í Heklubyggð. Ég nota gögn frá EMSC sem útskýrir aðra stærð sem er sýnd á myndinni. Þessi mynd er undir Creative Commons leyfi. Sjá nánar á CC Leyfi síðunni.
Jarðskjálfti með stærðina 5,1 eins og hann kom fram á jarðskjálftamælinum mínum í Böðvarshólum. Ég nota gögn frá EMSC sem útskýrir aðra stærð sem er sýnd á myndinni.Þessi mynd er undir Creative Commons leyfi. Sjá nánar á CC Leyfi síðunni.
Jarðskjálftahrinan er mjög þétt undir Dyngjujökli þessa stundina. Kvikuinnskotið er núna að hluta til á svæði sem er laust við allan jökul. Þannig að öll smágos sem hugsanlega verða þar munu sjást á yfirborðinu. Kvikuinnskotið virðist vera undir miklum þrýstingi, en ég veit ekki ennþá hvort að það mun leiða til eldgoss. Hinsvegar þykir mér það mjög líklegt miðað við stöðu mála eins og hún er í dag.
Hægt er að fylgjast með jarðskjálftamælunum mínum hérna. Vindur sést mjög vel á jarðskjálftamælunum ef hvasst er. Jarðskjálftar sem eru stærri en 3,5 sjást alltaf á jarðskjálftamælinum mínum í þeirri fjarlægð sem um er að ræða hérna.