Í gær (30. Janúar 2023) urðu tveir jarðskjálftar með stærðina Mw3,2 langt úti á Reykjaneshrygg. Það mældist aðeins einni minni jarðskjálfti en vegna fjarlægðar frá jarðskjálftamælaneti Veðurstofunnar þá er ómögulegt eða erfitt að mæla litla jarðskjálfta úti á Reykjaneshrygg.
Fyrir utan þessa jarðskjálftavirkni, þá hefur verið mjög rólegt á Íslandi. Slæmt veður hefur einnig komið í veg fyrir að jarðskjálftar mælist á Íslandi undanfarnar tvær vikur.
Í dag (27. Desember 2022) varð jarðskjálftahrina í eldstöðinni Fagradalsfjalli. Þessi jarðskjálftahrina var lítil í stærð jarðskjálfta eins og er algengt með jarðskjálfta í Fagradalsfjalli. Lesa áfram „Jarðskjálftahrina í eldstöðinni Fagradalsfjalli“
Í gær (26. Desember 2022) varð jarðskjálftahrina í eldstöðinni Reykjanes á Reykjanesskaga og Reykjaneshrygg. Mest af jarðskjálftahrinunni var út í sjó á Reykjaneshrygg, á svæði sem kallast Reykjanestá. Eitthvað af jarðskjálftum var á landi á sama svæði og því á Reykjanesskaga. Lesa áfram „Jarðskjálftahrina í eldstöðinni Reykjanes“
Aðfaranótt 27. Desember 2022 varð jarðskjálfti með stærðina Mw3,2 í Grímsfjalli. Þetta var stakur jarðskjálfti og enginn annar eftirskjálfti kom í kjölfarið eða önnur jarðskjálftavirkni. Lesa áfram „Jarðskjálfti í Grímsfjalli“
Í dag (18. Desember 2022) klukkan 11:08 varð jarðskjálfti með stærðina Mw3,8. Þessi jarðskjálfti fannst í byggð. Þessi jarðskjálfti er stærsti jarðskjálftinn í Kötlu í talsverðan tíma.
Það hafa komið fram nokkrir minni jarðskjálftar í kjölfarið á þessari jarðskjálftavirkni. Það hefur hinsvegar verið mjög lítil jarðskjálftavirkni þegar þessi grein er skrifuð.
Í dag (15. Desember 2022) hefur verið jarðskjálftahrina rúmlega 45 km austur af Fonti á Austurlandi. Þessi jarðskjálftahrina er úti í sjó og það er óljóst afhverju þessi jarðskjálftahrina er í gangi. Á þessu svæði eru engar eldstöðvar og þetta svæði er út í sjó. Þetta svæði er einnig eitt af eldri svæðum á Íslandi.
Stærsti jarðskjálftinn í þessari jarðskjálftahrinu var með stærðina Mw2,9 en fjarlægð frá landi kemur í veg fyrir að minni jarðskjálftar mælist sem verða á þessu svæði.
Það er hætta á sterkari jarðskjálftavirkni á þessu svæði. Það er ekki mjög líklegt að sterkari jarðskjálftar finnist í byggð vegna fjarlægðar frá landi og það er mjög lítið um byggð á þessu svæði á austurlandi. Það mun aðeins jarðskjálfti finnast ef þarna verður mjög stór jarðskjálfti.
Í dag (29-Nóvember-2022) klukkan 01:09 varð jarðskjálfti með stærðina Mw3,8 í Bárðarbungu. Þetta er hefðbundin þenslu jarðskjálfti í Bárðarbungu og fleiri svona jarðskjálftar munu eiga sér stað á næstum mánuðum og árum.
Hérna er eingöngu um hefðbundna jarðskjálftavirkni í Bárðarbungu. Eftir eldgosið í Bárðarbungu árin 2014 til ársins 2015 þá verður mjög langt þangað til að næsta eldgos verður í Bárðarbungu. Þangað til munu koma svona jarðskjálftar eins og varð núna í dag.
Í dag (27-Nóvember-2022) urðu tvær jarðskjálftahrinur í Kötlu. Það varð ekkert eldgos í kjölfarið á þessum jarðskjálftahrinum. Þessi jarðskjálftavirkni er áhugaverð og það er óljóst hvað er að gerast. Það er möguleiki á að þetta sé venjuleg jarðskjálftavirkni, þó svo að jarðskjálftarnir séu stærri en venjulega eða að þetta sé skref í eldstöðinni Kötlu sem mun leiða til eldgoss í framtíðinni. Það er engin leið að vita núna hvort er raunin. Þessar jarðskjálftahrinur urðu klukkan 03:41 og það kláraðist klukkan 03:53. Seinni jarðskjálftahrinan varð klukkan 11:48 og kláraðist klukkan 12:12.
Stærstu jarðskjálftarnir voru með stærðina Mw3,0 og Mw3,1 og síðan Mw3,4. Þetta er ekki kvikuinnskot sem olli þessum jarðskjálftum. Heldur var hérna um að ræða jarðskjálftahrinu í yfirborði jarðskorpunnar. Kvikuinnskot haga sér öðruvísi en það sem kom fram í þessari jarðskjálftahrinu. Miðað við það sem ég er að sjá, þá er möguleiki á að það muni koma fleiri svona jarðskjálftahrinu í eldstöðinni Kötlu á næstu dögum og mánuðum.
Í dag (22-Nóvember-2022) varð jarðskjálftahrina í Kolbeinsey. Þetta er langt norður af Grímsey. Stærstu jarðskjálftarnir í þessari jarðskjálftahrinu voru með stærðina Mw3,1 og það urðu fjórir slíkir jarðskjálftar. Meira en tugur af minni jarðskjálftum átti sér einnig stað. Vegna þess hversu langt þessi jarðskjálftavirkni er frá mælaneti Veðurstofu Íslands þá mælast aðeins stærstu jarðskjálftarnir.
Það er óljóst hvað er að gerast á þessu svæði.Þetta gæti bara verið venjuleg jarðskjálftavirkni fyrir þetta svæði. Þar sem þetta er svæði er langt frá landi og út í sjó, þá er erfitt að fylgast með því sem er að gerast.
Snemma í morgun (10-Nóvember-2022) varð jarðskjálftahrina í Fagradalsfjalli, aðeins norðan við þann stað þar sem eldgosið varð í Ágúst 2022. Þetta var hugsanlega mjög lítið kvikuinnskot sem þarna varð og varði í kringum 1 klukkustund áður en það stoppaði. Dýpi jarðskjálftanna var í kringum 5 til 7 km.
Þessi jarðskjálftavirknin gefur hugsanlegar vísbendingar um það hvar næsta eldgos verður í Fagradalsfjalli. Miðað við fyrri reynslu, þá verður ekki mikil viðvörun á því þegar eldgos er að hefjast. Í Ágúst þá byrjaði það eldgos með litlu kvikuinnskoti og lítilli jarðskjálftahrinu, sem síðan þróaðist yfir í stóra jarðskjálftahrinu dagana áður en eldgos hófst. Það er áhugavert að eldgosavirknin sé að færa sig norð-austur frekar en suður-vestur en óljóst afhverju það er að gerast.
Samþykki fyrir vefköku
Þessi vefsíða notar kökur til þess að muna stillingar og muna eftir stillingum. Þegar þú samþykkir kökur þá samþykkir þú allar kökur frá þessari vefsíðu.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.