Aðfaranótt að 30-Desember-2021 klukkan 04:16 varð jarðskjálfti með stærðina Mw3,0. Þessi jarðskjálfti fannst á Selfossi og í Hveragerði. Þessi jarðskjálfti er hluti af jarðskjálftahrinu á þessu svæði sem er ennþá í gangi þegar þessi grein er skrifuð.
Jarðskjálftavirknin á Suðurlandsbrotabeltinu. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Það er ekkert eldfjall á þessu svæði og því er jarðskjálftavirknin þarna eingöngu vegna flekahreyfinga. Það er ekki hægt að segja til um það hvenær jarðskjálftavirknin endar á þessu svæði. Þessi jarðskjálftavirknin gæti verið eftirskjálftavirkni eftir jarðskjálftana með Mw6,3 sem urðu þarna árið 2008. Þessi jarðskjálftahrina mun halda áfram í nokkra daga og jafnvel í einhverjar vikur en mun líklega enda hægt og rólega.
Í dag (29-Desember-2021) varð jarðskjálfti í Bárðarbungu með stærðina Mw3,6 (Veðurstofa Íslands) eða mb4,5 (EMSC upplýsingasíðan er hérna).
Jarðskjálftavirknin í Bárðarbungu. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Þessi jarðskjálftavirkni er eðlileg og er hluti af þenslu sem á sér núna stað í Bárðarbungu. Það verður ekki eldgos núna og það verður hugsanlega ekki eldgos í nokkur ár eða áratugi í Bárðarbungu.
Þessar upplýsingar verða úreltar mjög hratt og mjög fljótlega.
Núna er stöðug jarðskjálftavirkni í Fagradalsfjalli sem er hluti af Krýsuvík-Trölladyngju eldstöðvarkerfinu. Meira en tugur af jarðskjálftum sem hefur náð stærðinni Mw4,0 eða stærri hefur orðið síðustu klukkutímana og það eru litlar líkur á því að jarðskjálftavirknin muni hætta á næstunni. Stærstu jarðskjálftarnir síðustu klukkutímana hafa verið með stærðina Mw4,8 og síðan Mw4,5. Jarðskjálftarnir norður af Grindavík virðast vera gikkskjálftar vegna þenslu í Fagradalsfjalli.
Jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga í Fagradalsfjalli. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.Þétta jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga eins og hann er sýndur á grafinu hjá Veðurstofu Íslands. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Jarðskjálftahrinan núna er nærri Grindavík eins og gerðist fyrr á árinu 2021 þegar svipuð jarðskjálftahrina varð þarna. Rétt áður en það fór að gjósa í Fagradalsfjalli. Jarðskjálftahrinan mun halda áfram þangað til að eldgos hefst á ný. Jarðskjálftahrinunar munu einnig koma fram í bylgjum, með mikilli jarðskjálftavirkni en síðan minni jarðskjálftavirkni þess á milli. Ég reikna með sterkum jarðskjálftum á næstu dögum ef það fer ekki að gjósa í Fagradalsfjalli eða á nálægum svæðum.
Þessar upplýsingar verða úreltar mjög fljótlega hérna.
Jarðskjálftahrinan í Fagradalsfjalli hélt áfram þann 22-Desember og þann 23-Desember. Stærsti jarðskjálftinn var með stærðina Mw4,9 og fannst yfir stórt svæði. Það hefur ekki verið tilkynnt um neitt tjón á eignum ennþá í þessari jarðskjálftahrinu.
Það eru núna þrjár jarðskjálftamiður í þessari jarðskjálftahrinu. Fyrsta jarðskjálftamiðjan er norðan við stóra gíginn, jarðskjálftamiðja tvö er undur stóra gígnum, jarðskjálftamiðja þrjú er í Nátthagakrika. Það er það svæði þar sem fólk gekk upp að eldgosinu á gönguleið A og B.
Jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga í Fagradalsfjalli. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.Þétt jarðskjálftavirkni í Fagradalsfjalli. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Það er ljóst að þessi jarðskjálftavirkni mun ekki hætta fyrr en eldgos hefst á ný á þessu svæði. Það er ekki hægt að segja til um það hvenær eldgos hefst þarna. Ef að nýr gígur opnast á þessu svæði, þá mun jarðskjálftavirknin halda áfram að stækka þangað til að það gerist. Ef að gígur sem er nú þegar á svæðinu byrjar að gjósa, þá mun það koma af stað einhverri jarðskjálftavirkni. Það er ljóst er að kvikan mun finna sér leið þar sem mótstaða er minnst í jarðskorpunni, alveg sama hver sú leið er. Þegar þessi grein er skrifuð þá hafa orðið meira en 6000 jarðskjálftar og í kringum 50 til 100 af þeim hafa verið jarðskjálftar sem eru stærri en Mw3,0.
Staðan núna breytist mjög hratt og því verða upplýsingar í þessari grein úreltar mjög hratt.
Það er möguleiki á að eldgos sé að fara að hefjast aftur í Fagradalsfjalli (Krýsuvík-Trölladyngja eldstöðin) eftir að jarðskjálftahrina hófst þar klukkan 17:00 þann 21-Desember-2021. Jarðskjálftahrinan hefur verið að vaxa mjög hratt síðustu klukkutímana og það sér ekki á þeim vexti þegar þessi grein er skrifuð. Þegar þessi grein er skrifuð er stærsti jarðskjálftinn með stærðina Mw3,3. Yfir 150 jarðskjálftar hafa mælst frá því klukkan 17:00.
Jarðskjálftavirknin í Fagradalsfjalli í eldstöðvarkerfi Krýsuvík-Trölladyngju. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Staða mála er að breytast mjög hratt á þessu svæði. Þegar þessi grein hefur eldgos ekki ennþá hafist en það er aðeins spurning um klukkutíma áður en eldgos hefst á þessu svæði á ný. Það gæti gerst í nótt eða einhverntímann á morgun. Það er engin leið að vita það þegar þessi grein er skrifuð.
Ég mun setja inn nýja uppfærslu seint á morgun. Þar sem ég verð upptekinn framan af degi í öðrum hlutum. Það er ekki hægt að komast hjá þessu.
Í dag (21-Desember-2021) klukkan 09:37 varð jarðskjálfti með stærðina Mw3,0 í Vatnafjöllum sunnan við Heklu.
Jarðskjálftavirknin sunnan við Heklu. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Þessi jarðskjálftavirkni er eftirskjálftavirkni af jarðskjálftanum sem varð fyrir aðeins meira en mánuði síðan og var með stærðina Mw5,2 í Vatnafjöllum. Það er mjög líklegt að jarðskjálftavirkni muni halda áfram þarna í margra mánuði.
Í dag (13-Desember-2021) klukkan 16:04 hófst jarðskjálftahrina í Vatnafjöllum. Þetta virðist vera eftirskjálftar af Mw5,2 jarðskjálftanum sem varð fyrir nokkrum vikum síðan. Það komu fram þrír jarðskjálftar með stærðina Mw3,0 þarna. Stærstu jarðskjálftarnir voru með stærðina Mw3,0 (klukkan 16:04), jarðskjálfti með stærðina Mw3,2 (klukkan 16:07) og síðan jarðskjálfti með stærðina Mw3,5 (klukkan 16:08).
Jarðskjálftavirknin sunnan við Heklu í Vatnafjöllum. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Það er ennþá hætta á eftirskjálftum á þessu svæði. Það er spurning hvort að á þessu svæði verði stærri jarðskjálfti á næstu vikum.
Í dag (8-Desember-2021) hefur verið jarðskjálftahrina norður af Grindavík. Stærsti jarðskjálftinn hingað til var með stærðina Mw3,1 klukkan 10:44. Það kemur ekki fram í fréttum hvort að þessi jarðskjálfti fannst í Grindavík. Jarðskjálftavirkni þarna hefur hægt og rólega verið að aukast síðan það hætti að gjósa í Fagradalsfjalli þann 18-September-2021. Það er ennþá jarðskjálftahrina á svæðinu og eru þar litlir jarðskjálftar að koma fram þegar þessi grein er skrifuð. Lesa áfram „Jarðskjálftahrina norður af Grindavík“
Ég hef verið að bíða eftir upplýsingum um stöðu mála í Grímsfjalli í dag. Í gær (05-Desember-2021) uppgötvaðist nýr ketill í Grímsfjalli. Það er óljóst hvernig þessi ketlill myndaðist en hugsanlegt er að þarna hafi orðið eldgos sem náði ekki upp úr jöklinum. Óróagögnin er mjög óljós um hvort að það hafi orðið lítið eldgos þarna. Klukkan 06:16 varð jarðskjálfti með stærðina Mw3,6 í Grímsfjalli og ég náði að mæla þennan jarðskjálfta mjög illa á jarðskjálftamæli hjá mér og sú mæling bendir til þess að sá jarðskjálfti hafi komið til vegna kvikuhreyfinga í Grísmfjalli. Lesa áfram „Jarðskjálfti með stærðina Mw3,6 í Grímsfjalli, ekkert eldgos ennþá“
Staðan er núna óskýr og ekkert hefur verið staðfest þegar þessi grein er skrifuð. Þetta virðist hafa byrjað fyrir um einni klukkustund síðan og þá fór óróinn í kringum Grímsfjall að breytast. Þetta er ekki eins skörp breyting og varð rétt áður en eldgosið sem varð í Grímsfjalli í Maí 2011. Þessi breyting á óróanum er hinsvegar mjög líklega í samræmi við þær breytingar á óróa sem má búast við þegar kvika fer af stað innan í eldstöðvarkerfi. Jarðskjálftavirkni hefur verið í lágmarki síðustu 24 klukkustundirnar.
Óróinn í Grímsfjalli fyrir um klukkutíma síðan (þessi grein er skrifuð um klukkan 17:50 þann 04-Desember-2021). Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Ástandið núna er þannig að eingöngu er hægt að fylgjast með því. Stundum verður eldgos eftir jökulfljóð í Grímsfjöllum. Stundum gerist ekki neitt og það er ekki hægt að segja til um það núna hvað mun gerast.
Samþykki fyrir vefköku
Þessi vefsíða notar kökur til þess að muna stillingar og muna eftir stillingum. Þegar þú samþykkir kökur þá samþykkir þú allar kökur frá þessari vefsíðu.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.