Samkvæmt fréttum frá Veðurstofu Íslands og Rúv þá er þensla hafin aftur við fjallið Þorbjörn á Reykjanesskaga eftir nokkrar vikur af lítilli virkni á þessu svæði og engri þenslu. Þenslan er lítil á þessari stundu en það gæti breyst án nokkurar viðvörunar. Það er ekki víst að þarna verði mikil jarðskjálftavirkni á þessu svæði þar sem svæðið er nú þegar mjög mikið þanið út en mesta hættan er á jarðskjálftum í jaðrinum á þessu svæði og þar er mesta hættan á jarðskjálfta sem gæti náð stærðinni Mw6,0 en það er ekki hægt að segja til um það hvernig staðan er á þessu svæði vegna þess hversu mörg misgengi eru á þessu svæði vegna eldstöðva og rekdalsins sem þarna er (dalurinn er fullur af hrauni).
Í gær var jarðskjálftahrina norðan við Grindavík. Höfundarréttur þessar myndar tilheyrir Veðurstofu Íslands.
Það er ekki hægt að segja til um það hvernig þetta mun þróast á næstu dögum og vikum með neinni vissu. Þar sem þarna hefur ekki orðið eldgos í hátt í 800 ár. Það er ekki vitað hvernig eldstöðin er þegar þarna verður eldgos og þensla á sér stað.
GPS gögn er að finna hérna.
Fréttir af þessu
Land virðist farið að rísa við Þorbjörn á ný (Rúv)
Vísbendingar um að landris sé hafið að nýju við Þorbjörn (Vísir.is)
Er þér alvara að biðja fólk um styrki á þeim forsendum að þú sért skrifa greinar um eldgos þegar það eina sem þú gerir að endurskrifa fréttir um eldgos á Íslandi?
Vilt þú ekki bara fokka þér eitthvert annað ef þetta er viðhorfið hjá þér.
Það er reyndar stórmerkilegt að þú skulir vera að kvarta undan þessu þar sem ég bið sjaldan um styrki á íslensku vefsíðunni. Þeir styrkja sem vilja og aðrir gera það ekki.
Ég legg samt til að þú fokkir þér eitthvert annað.