Þetta er stutt grein um stöðuna í eldstöðinni Fagradalsfjall. Þessi grein er að mestu leiti um virknina sem varð þann 6-Mars-2021.
Yfirlit yfir núverandi virkni
- Jarðskjálftavirkni er að mestu leiti aðeins litlir jarðskjálftar.
- Hættan á eldgosi hefur ekki minnkað þrátt fyrir breytta jarðskjálftavirkni.
- Kvikuinnskotið er grynnst á 2 km dýpi en annars er dýpið á milli 5 km til 8 km dýpi.
- Mesta jarðskjálftavirknin er við Fagradalsfjall (norðurendann?) og síðan við Keilir.
- Eldstöðin Fagradalsfjall hefur ekki gosið í 12.000 ár.
- Það er engin merki um kvikuvirkni í eldstöðvunum Krýsuvík og síðan í eldstöðinni Reykjanes (Svartsengi?). Allir jarðskjálftar sem eru að koma fram í þeim eldstöðvum eru vegna spennubreytinga í jarðskorpunni vegna þenslunnar í Fagradalsfjalli.
Það er ennþá hætta á mjög stórum jarðskjálfta á Reykjanesinu með stærðina Mw6,0 til Mw6,5 vegna þeirra spennubreytinga sem þenslan í Fagradalsfjalli veldur í jarðskorpunni á stóru svæði.
Órói hefur ekki greinst síðan á Miðvikudaginn en það getur breyst án viðvörunnar.
Vefmyndavélar með beint streymi af Keili
Beint vefstreymi af skjálftasvæðinu – Efstaleiti
Beint vefstreymi af skjálftasvæðinu – Vogastapi (Rúv.is)
Keilir í beinni (mbl.is)
Óróasvæðið í beinni útsendingu (Vísir.is)
Live from Iceland
Keilir og skjálftasvæðið (YouTube)
Road camera 1
Road camera 2 (Nætursjón/Innrautt)
Ef eitthvað mikið gerist þá mun ég skrifa grein um það eins fljótt og ég mögulega get.