Þessar upplýsingar munu verða úreldar mjög fljótt.
Staðan í Öskju
Staðan í Öskju miðað við þær upplýsingar sem ég hef núna.
- Kvikuinnskotið frá Bárðarbungu heldur áfram leið sinni inn í Öskju. Frá því í gær virðist það ekki hafa færst mikið samkvæmt síðustu upplýsingum sem ég hef (frá því í gær).
- Jarðskjálftavirkni er að aukast í Bárðarbungu. Þetta er vegna kvikuinnskotsins frá Bárðarbungu.
- Staða Öskju er ennþá á gulu stigi.
Staðan í Bárðarbungu
Staðan í Bárðarbungu miðað við síðustu upplýsingar sem ég hef.
- Eldgosið er búið í bili. Það varði aðeins í 3 til 4 klukkutíma og var mjög lítið.
- Það kom eingöngu hraun í þessu eldgosi, það var lítil til engin aska sem kom upp í þessu eldgosi.
- Eldgosið átti sér stað á sprungu þar sem gaus síðast árið 1797 og myndaði Holuhraun. Eldgosið varð á gígaröð.
- Gossprungan var 900 metra löng samkvæmt fréttum í dag (29-Ágúst-2014).
- Jarðskjálftavirkni minnkaði á meðan eldgosið átti sér stað. Síðan að eldgosinu lauk þá hefur jarðskjálftavirkni aukist aftur. Þegar eldgosið náði hátindi sínum þá mældi ég hrinu af jarðskjálftum sem áttu sér stað á þeim stað þar sem eldgosið varð.
- Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé eldgos í eiga sér stað í eldri gígaröð. Það er hugsanlegt að þetta sé hefðbundið fyrir þetta svæði.
- Á meðan virknin er eins og hún er í Bárðarbungu, þá er hætta á svona eldgosum án mikils fyrirvara.
- Stærstu jarðskjálftarnir í dag voru með stærðina 5,2, annar stærsti jarðskjálfti dagsins hafði stærðina 4,8, þriðji stærsti jarðskjálfti dagsins hafði stærðina 4,1.
- Jarðskjálftavirkni er ennþá mikil og hafa yfir 1100 jarðskjálftar mælst í dag (29-Ágúst-2014) samkvæmt mínum jarðskjálftateljara.
- Óróinn er á svipuðu stigi og hann hefur verið á síðan 16-Ágúst-2014.
Greining á eldgosinu
Eldgosið byrjaði um klukkan 00:02 þann 29-Ágúst-2014. Það sást fyrst á vefmyndavél Mílu og ég fæ fyrstu skilaboð um eldgosið á Facebook um klukkan 00:30. Samkvæmt fréttum Rúv og öðrum þá var toppur eldgossins um klukkan 01:20. Stærð þessa eldgos var minniháttar og olli ekki neinum breytingum á kvikuinnskotinu sem olli þessu eldgosi. Það er ekki hægt að útiloka frekari eldgos á þessu svæði í framtíðinni, að minnsta kosti á meðan ný kvika streymir inn í kvikuinnskotið. Eins og hefur verið nefnt áður, þá varð síðasta eldgos á þessari sprungu árið 1797.
Þetta er annað eldgosið í Bárðarbungu síðan 16-Ágúst-2014. Fyrsta eldgosið svo vitað sé átti sér stað þann 23-Ágúst-2014, en það varð undir jökli sem er allt að 600 metra þykkur og það var mjög erfitt að staðfesta það vegna þess. Af þessum sökum sást ekkert til þess. Þetta nýja tímabil virkni í Bárðarbungu mun hugsanlega endast í mörg, þess vegna er ég að undirbúa mig undir það að skrifa mjög mikið um Bárðarbungu á næstunni.
Ég mun láta vita af eldgosum eins fljótt og hægt er. Samkvæmt veðurspám þá verður leiðinlegt veður á næstunni á Íslandi. Því má reikna með að slæmt útsýni verði til Bárðarbungu næstu daga.
Hægt er að sjá myndir af nýju og gömlu gígaröðinni hérna.