Staðan í Bárðarbungu þann 8-Október-2014

Hérna er staðan í Bárðarbungu þann 8-Október-2014. Ég mun stytta textann aðeins þegar lítið er að gerast í Bárðarbungu og skrifa minni uppfærslur í leiðinni.

Staðan í Bárðarbungu þann 8-Október-2014

  • Stærsti jarðskjálftinn í dag var með stærðina 5,2. Þessi jarðskjálfti varð NNA í Bárðarbungu, þar sem ég tel hugsanlegt að kvika sé að bora sér leið í gegnum jarðskorpuna. Þetta er þó bara hugmynd hjá mér sem er ekki sönnuð.
  • Engar stórar breytingar hafa átt sér stað í eldgosinu í Holuhrauni. Hraunið er núna orðið 52 ferkílómetrar að stærð. Kraftur eldgossins er mjög svipaður og hann var þegar það fór að gjósa fyrir fimm vikum síðan.
  • Slæmt veður á svæðinu kemur í veg fyrir að hægt sé að fylgjast almennilega með stöðu mála í eldgosinu.
  • Stærsti gígurinn í eldgosinu er núna orðinn 100 metra hár samkvæmt fréttum. Sá gígur er kallaður Baugur. Gígur sem hefur nafnið Suðri er í kringum 40 til 50 metra hár. Hægt er að fá frekari upplýsingar á frétt Vísir.is um eldgosið.
  • Það var næstum því engin jarðskjálftavirkni undir kvikuinnskotinu í dag sýnist mér.
  • Ég hef ekki neinar frekari fréttir af stöðu mála eftir því sem ég kemst næst.

Ef eitthvað frekar gerist. Þá mun ég setja það hingað inn ef þörf er á því. Það er ekki hægt að spá fyrir um það hvað eldgosið gerir næst og atburðir geta gerst án viðvörunar í eldstöðvum þegar þær eru að gjósa.

One Reply to “Staðan í Bárðarbungu þann 8-Október-2014”

  1. Skemmtilegar pælingar, sérstaklega með þann möguleika að gos gæti hafist fyrirvaralaust í/meðfram öskjunni í Bárðarbungu. Þar telur þú hugsanlegt að kvikan sé að bora sig uppá við.

    Eitt varðandi það. Væri ekki mikil jarðskjálftahrina ef það væri kvika að koma upp? jafnvel þótt það gerðist hægt? Þá væri hægt að sjá það á dýptinni á skjálftunum. Það er ljóst að gangurinn er ekki að lengjast eins og staðan er í dag, gæti breyst.

    Ég sé þetta sem hægt og óregglulegt öskjusig sem á eftir að standa yfir í einhvern tíma í viðbót. Hvað þarf að sjást á skjálftarmælum ef kvikan mun brjótast uppávið undir jökli heldur þú?

Lokað er fyrir athugasemdir.